1 9

Tomi Ungerer

Máni

Máni

Venjulegt verð 1.490 kr
Venjulegt verð Sértilboð 1.490 kr
Sértilboð Uppselt

Falleg og ljóðræn frásögn með djúpstæðum og tímalausum boðskap

„Á stjörnubjörtum nóttum má sjá Mána samanhnipraðan í glitrandi sessi sínum úti í geimnum.“

Hér segir frá Mána sem grípur einn daginn í logandi hala á stjörnu sem þýtur hjá tunglinu og lendir á jörðinni til að kynnast lífinu þar.

Máni hefur löngum fylgst úr fjarlægð með mannfólkinu, sem dansar og syngur og skemmtir sér, og þráð að taka þátt í gleðinni. En á jörðinni rennur upp fyrir honum að kannski á hann enga samleið með mönnunum …

Máni er falleg, fyndin og ljúfsár saga, skreytt dásamlegum teikningum höfundarins, Tomi Ungerer. Eins og öll meistaraverk handa börnum höfðar hún ekki síður til fullorðinna og er ein þeirra bóka sem lesa má aftur og aftur.

  • Fyrir 3 ára og eldri
  • Harðspjalda
  • 14 × 18 sm
  • 40 blaðsíður

Tomi Ungerer (1931–2019) hefur verið lýst sem „hinum eina, sanna arftaka Grimmsbræðra og Hans Christian Andersen“ (The New York Times Book Review).

AM forlag hefur gefið út tvær aðrar bækur eftir hann: Ræningjarnir þrír og Tröllið hennar Sígriðar. Kaupa má þrjár bækur saman, í bókaknippi, á sérstökum vildarkjörum.

Sverrir Norland íslenskaði.

  • Fyrirkomulag heimsendinga

    Við bjóðum upp á fría heimsendingu ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.

    Við sendum allar vörur með Íslandspósti beint heim að dyrum. Póstgjald fylgir verðskrá Póstsins og fer eftir þyngd og fjölda bóka í pöntun.

    Allar pantanir eru afgreiddar innan viku eftir pöntun. Hikaðu ekki við að láta okkur vita ef þér liggur sérstaklega á að fá bækurnar í hendurnar!

    Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 11% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram.

  • Er þetta gjöf?

    Mundu að við pökkum bókunum með glöðu gleði inn í gjafapappír fyrir þig!

    Skrifaðu athugasemd í athugasemdakassann í innkaupakörfunni þinni ef þú vilt fá þær innpakkaðar eða hefur aðrar slíkar óskir.