Skilmálar

AM forlag ehf.

amforlag@gmail.com
Mávahlíð 6
105 Reykjavík

Kennitala: 6110212080
VSK númer: 142917

AM forlag áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, eða hætta að bjóða upp á vörur fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar innan viku eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun AM forlag hafa samband við kaupanda og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Um allar pantanir, sem Íslandspóstur sér um að dreifa, gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts. AM forlag ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni eftir að hún er send frá AM forlag ehf. til viðkomandi, er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Verð á vöru og sendingakostnaður
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 11% vsk. en sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Íslandspósti beint heim að dyrum.
Póstgjald fylgir verðskrá Póstsins og fer eftir þyngd og fjölda bóka í pöntun. 

Að skipta og skila vöru
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð og eins og ný þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.

Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingarkostnað sem af þessu hlýst eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leyti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003 og laga um neytendasamninga.

Trúnaður (öryggisskilmálar)
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Privacy policy 
All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Governing law / Jurisdiction 
These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.